SKÓLAREGLUR
- Við leggjum ekki aðra í einelti.
- Við aðstoðum þá nemendur sem verða fyrir einelti.
- Við gætum þess að enginn sé einn. Ef við vitum að einhver er lagður í einelti eigum við að segja umsjónarkennaranum (eða öðrum starfsmanni í skólanum) frá því og líka fólkinu heima.
- Skólinn er okkar vinnustaður og við gerum skólaveruna sem ánægjulegasta með hjálpsemi, tillitssemi og prúðmannlegri framkomu.
- Við göngum vel um, förum vel með bækur og aðrar eignir skólans bæði utan sem innan dyra.
- Við mætum stundvíslega í skólann og komum vel undirbúin.
- Við hengjum yfirhafnir okkar í fatahengi og röðum skónum okkar í skóhillur.
- Nemendur fara út á leikvöll/höll í frímínútunum sem liggja að ávaxtanesti og hádegismat.
- Nemendur þrífa borð og sópa kennslustofur í lok kennsludags.
- Notkun farsíma er óheimil inni á skólatíma og á skólalóð.
- Sælgætisát og gosdrykkja er óheimil í skólanum nema leyft sé á samkomum.
- Neysla orkudrykkja er með öllu óheimil.
- Notkun tóbaks, rafsígaretta, áfengis og annarra vímuefna er með öllu óheimil.
- Allt sorp er flokkað.
- Lífrænn úrgangur er settur í safntunnur.
MEÐFERÐ AGABROTA
Reiðhjól og hjólaleiktæki
- Nemanda er heimilt að koma einn á reiðhjóli frá og með vori í 2. bekk.
- Áður en þeim aldri er náð skal nemandi koma hjólandi í fylgd með fullorðnum í og úr skóla.
- Það er mjög mikilvægt að gengið sé frá hjólum í hjólagrindur við skólann.
- Reiðhjól og önnur hjólaleiktæki eru alfarið á ábyrgð nemenda og forráðamanna þeirra, einnig er það á ábyrgð forráðamanna að nemendur noti viðeigandi öryggisbúnað.
- Það er skylda nemenda að koma með hjálm í skólann.
- Umferð vélknúinna ökutækja er alfarið bönnuð á skólalóð.
Reglur um notkun snjalltækja í grunnskólum Fjarðabyggðar
Handbók um einelti og vináttufærni - forvarnir og viðbrögð