Ungmennaráð er skipað fulltrúum nemenda úr 8. - 10. bekk allra grunnskólanna í Fjarðabyggð auk fulltrúa annarra félaga. Nemendur kusu þau Möndu Ómarsdóttur í 10. bekk og Loga Kristinsson í 9. bekk sem fulltrúa Grunnskóla Reyðarfjarðar í Ungmennráð.
Helsta hlutverk ungmennaráðs er að gæta hagsmuna ungs fólks í Fjarðabyggð á aldrinum 13 til 18 ára gagnvart sveitarstjórn. Það hlutverk rækir ráðið með því m.a. að koma skoðunum og tillögum ungs flólks til viðeigandi aðila innan stjórnkerfis sveitarfélagsins og með umfjöllun og umsögnum um einstök mál sem snerta aldurshópinn sérstaklega. Þá er því enn fremur ætlað að efla tengsl nemenda framhaldsskóla sveitarfélgsins og bæjaryfirvalda með því að standa fyrir umræðu innan framhaldsskólans um þau mál sem horft geta til hagsbóta.
Heiðarvegur 14a 730 Reyðarfjörður Sími á skrifstofu: 470 9200 Netfang: rey@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |