Göngum í skólann

Núverandi 8. bekkur vann Gullskóinn síðasta haust, viðurkenningu fyrir að velja virkan ferðamáta í o…
Núverandi 8. bekkur vann Gullskóinn síðasta haust, viðurkenningu fyrir að velja virkan ferðamáta í og úr skóla

Í dag hefst verkefnið göngum í skólann. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.

Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta, hjólabretti eða annað. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að koamst á milli staða. 

Verkefnið stendur formlega yfir í einn mánuð en vikuna 28. september til 5. október munum við skrá hreyfingu nemenda í Grunnskóla Reyðarfjarðar og í lok vikunnar fær sá bekkur, þar sem hlutfallslega flestir tileinka sér virkan ferðamáta, gullskóinn afhentan við formlega athöfn.