Hjólanotkun að vori

Þegar vorar og hlýnar í veðri eru reiðhjólin og aðrir farskjótar gjarnan dregnir fram. Þá er þörf á að rifja upp reglur um notkun slíks búnaðar.

Hjólareglur

Gilda fyrir reiðhjól, rafmagnshjól og rafmagnshlaupahjól

1. Nemendur mega koma á hjóli í skólann frá og með vori í 2. bekk. Nemandi sem kemur hjólandi í skólann gerir það á ábyrgð foreldra/forráðamanna sem meta færni barnsins og aðstæður á hjólaleiðinni. Skv. 44. grein umferðarlaga mega börn yngri en níu ára ekki hjóla á akbraut án leiðsagnar og eftirlits aðila sem hefur náð 15 ára aldri. Samkvæmt tillögum frá Umferðastofu er meginreglan sú að börn eiga ekki að hjóla í umferð innan um bíla fyrr en þau eru orðin ellefu til tólf ára gömul.

2. Allir nemendur sem koma á hjóli í skólann eiga að vera með hjálm. 79. grein umferðarlaga segir: „Barn yngra en 16 ára skal nota reiðhjólahjálm við hjólreiðar“.

3. Nemendur mega ekki vera á hjóli í frímínútum eða í Skólaseli.

4. Á skólatíma eiga hjól að vera læst í eða við hjólagrindur. Skólinn ber ekki ábyrgð á hjólum.