Undanfarnar vikur hafa nemendur 9. bekkjar ígrundað Laxdælu, eina að perlum íslenskra bókmennta. Í vikunni sýndu þau afrakstur þeirra vinnu.
Nemendur lásu saman söguna og ræddu um þær litríku persónur sem þar koma fyrir. Söguþráður Laxdælu er spennandi og samspil persóna einstakt. Laxdæla er oft sögð frægasta ástarsaga íslenskra bókmennta. Nemendur fengu síðan frjálsar hendur við að vinna lokaverkefni úr sögunni og voru verkefni þeirra mjög fjölbreytt. Þar var hringur Melkorku, smíðaður úr 100 kr. peningi, sverð af ýmsum toga, myndband, myndverk, frásagnir og leirlistarverk, svo eitthvað sé nefnt. Einn nemandi gerði heimasíðu sem skoða má hér.
Nemendur buðu foreldrum sínum, kennurum og nemendum 8. bekkjar á sérstaka sýningu á verkum sínum og má sjá myndir frá sýningunni hér.
Heiðarvegur 14a 730 Reyðarfjörður Sími á skrifstofu: 470 9200 Netfang: rey@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |