Í gær var haldið skólaþing í Grunnskóla Reyðarfjarðar þar sem starfsfólk, nemendur og forráðamenn þeirra settust niður og fundu leiðir til að styrkja sjálfsmynd og líðan nemenda.
Til þingsins var boðað í kjölfar niðurstaðna rannsókna og kannana sem lagðar hafa verið fyrir nemendur undanfarin misseri sem sýna að nemendum líður ekki alltaf vel. Þeir upplifa það að þeim gangi illa að læra, þeim líður ekki alltaf vel í bekknum sínum eða meðal jafnaldra og hafa almennt minni trú á sér.
Niðurstöðurnar þóttu okkur alvarlegar og fannst mikilvægt að bregðast við og finna leiðir til að hjálpa nemendum svo þeim gangi betur í lífi og starfi. Ákveðið var að leita til allra hlutaðeigandi aðila því skólinn er aðeins einn þáttur í lífi barna og ungmenna, heimilið annar og félagslíf þeirra enn annar áhrifaþáttur. Okkur var því ljóst að þetta verkefni ynnum við ekki ein heldur þyrftu allir að vinna saman svo árangur næðist. Því var ákveðið að boða til skólaþings.
Nemendaráð fór yfir helstu niðurstöður kannana og valdi þá þætti sem þeim þótti mikilvægast að vinna með. Þeirra niðurstaða var síðan borin undir skólaráð og fulltrúa stjórnar foreldrafélagsins og varð endirinn sá að yfirskrift þingsins varð:
Hvað getum við, nemendur, heimili og skóli, gert til að bæta sjálfsmynd nemenda þannig að þeim líði sem best og blómstri í leik og starfi?
Þingið var síðan eins og fyrr segir, haldið í gærmorgun og eftir ánægjuleg þingstörf var niðurstaðan sú að langflest töldu mikilvægast að hefjast handa við að efla og auka almenna virðingu. Þar kom meðal annars fram að nemendur þyrftu að
Heimilin þyrftu meðal annars að
Skólinn og starfsfólk hans þyrfti meðal annars að
Starfsfólk skólans mun nú vinna aðgerðaáætlun úr niðurstöðunum í samráði við nemendaráð, skólaráð og foreldrafélagið og verður hún send öllum hlutaðeigandi í tölvupósti.
Við erum afar ánægð með framkvæmd skólaþingsins okkar og væntum þess að það skili góðum árangri. Við viljum þakka foreldrum fyrir þeirra mikilvæga framlag til þingstarfa.
Hér má sjá myndir frá skólaþingi.
Heiðarvegur 14a 730 Reyðarfjörður Sími á skrifstofu: 470 9200 Netfang: rey@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |