Eins og strákarnir hlaupa inn þorrann hlaupa stelpur inn góu.
Í þjóðsögum Jóns Árnasonar segir frá því að húsfreyjur áttu að fagna góu á líkan hátt og bændur fögnuðu þorra, fara fyrstar manna á fætur fáklæddar góumorguninn fyrsta, ganga þrisvar í kringum bæinn og bjóða góu í garða.
Fyrsta góudag áttu og húsfreyjur að halda grannkonum sínum heimboð en við í Grunnskóla Reyðarfjarðar munum bjóða hlaupagörpunum hins vegar upp á djúsglas í tilefni dagsins.
Hér má sjá fleiri myndir í tilefni dagsins en dýrindis veður var þennan fyrsta virka dag í góu.
Heiðarvegur 14a 730 Reyðarfjörður Sími á skrifstofu: 470 9200 Netfang: rey@skolar.fjardabyggd.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |